<$BlogRSDUrl$>

Kemur sterkur inn..

sunnudagur, nóvember 30, 2003

Það verður seint sagt að ég sé góður á snjóbretti.......... eins og berlega kom í ljós í dag. Fór með Arnóri ofurlöggu
í jeppatúr upp á hellisheiði, að sjálfsögðu fór brettið með. En í þetta skipti komum við þó heim án teljandi meiðsla
og með báða GSM símana í lagi.......
Ragnheiður snillingur setti inn comment svo að nú geta allir sem vilja tjáð sig!
óþolandi þessar tölvur..... var búinn að skrifa heila ritgerð og hún bara hvarf á sekúndubroti......

Byrjum upp á nýtt.....

Ég átti yndislegt símtal við mína heittelskuðu áðan. Hún var að koma af kvöldvakt í snælandvideo og er frekar þreytt og raddlaus. Ég fékk nákvæmar leiðbeiningar um hvernig ég ætti að haga mér þegar ég kem heim af vaktinni í fyrramálið klukkan 07:30. Þær voru eitthvað á þessa leið:

1. Þegar ég opna útidyrahurðina skal ég gera það mjög varlega og alls ekki skella þeim aftur.
2. Læðast inn í íbúðina, helst á tánum og alls ekki koma við í eldhúsinu til þess að fá mér í gogginn... get borðað seinna.
3. Klæða mig hljóðlega úr vinnufötunum og ALLS EKKI kveikja nein ljós.bannað
4. Þegar ég er loksins tilbúinn í háttinn á ég að leggjast varlega upp í rúm, ekki að henda mér upp í eins og ég er vanur...
5. Stranglega er bannað að reyna að tala við, snerta, kissa, strjúka eða vera með aðra kynferðislega tilburði.Hún vill sofa!!!
6. Ég skal eftir bestu getu reyna að hreyfa mig sem minnst upp í rúmi, allt nuð og velterí óæskilegt.
7. Svo eru allar hrotur, draumfarir sem valda hreyfingum og tal upp úr svefni stranglega bannað.......

Eða eins og Siggi Medic stakk upp á : láta bara karlinn liggja á mottunni inn í forstofu. Þar er meira að segja hægt að
loka fram og hávaðamengun í algeru lágmarki.

Ég segi nú bara, hvurslags meðferð er þetta á karlinum eiginlega???????

Annars er búið að vera heldur rólegt á vígstöðvunum í kvöld, Eitt bílslys sem endaði vel og eitt bráðaútkall um miðnættið.

Segjum það gott í bili úr skútahrauni.
hmmmmmm. allaveganna er klukkan 05:19 núna, hvernig breyti ég þessu........ æji nenni ekki meira. spyr ghurkuna að þessu í fyrramálið.....

laugardagur, nóvember 29, 2003

Úffffff. hvað ég er nú saddur. Var að klára að gúffa í mig tveimur hamborgurum ala andri, eins og í gamla daga alveg án alls grænmetis.
Annars er þessi dagur búinn að vera mjög fljótur að líða, vaknaði um hádegisbilið og skutlaði frúnni í jólabakstur hjá mömmu sinni. Þar sem það gékk ekkert allt of vel hjá mér að lúra þar fór ég fljótlega heim og steinsofnaði, Zzzzzzzzzzzzzz

Vaknaði við brölt í einmanna kisu sem var að æfa sig í að marsera yfir bumbuna á mér... fékk sér svo að súpa úr vatnsglasinu hennar rabó.Enda alveg ágætt að rumska þá því kominn tími að ná í konuna og koma henni til vinnu.

Ætli ég fái meiri svefn í nótt? kemur í ljós, ekki það að ég sé að kvarta... það eru ekki margir sem geta sagst geta sofið á fullum launum, með samþykki yfirmanns síns allaveganna.

Smá spekulering; hvað á ég að gefa konunni í jólagjöf? hvað á ég að byðja um í jólagjöf... allir sem gætu haft eitthvað um þetta mál að segja pósti á mig, tek glaður á móti uppá stungum á póstfangið

Kveðja úr Gólanhæðum.......
tímaprófun! Klukkan á að vera 11:57!
Vill benda á rangann tíma á síðast bloggi, er hérmeð leiðréttur....
Ohhhhh, afhverju er ekki hægt að nýta tæknina betur?? bara spyr. í stað þess að vekja saklausa slökkviliðsmenn með látunum frá neyðarlínunni "410 STRAX Í BÍL".
Það kemur mér ekkert við þegar vaktafélagar mínir í tunguhálsi eru að fara í eitthvað rugl í efri byggð, og hvað þá klukkan 4:15 um nótt........

Þetta er það sem er ofanlega í huga mínum akkurrat núna þegar klukkan er rétt að verða 5 um nótt. Við erum nefnilega með kallkerfi á öllum slökkvistöðum þar sem neyðarlínan kallar upp ákveðinn slökkvibíl í útkall ( 310 skógarhlíð, 410 tunguháls, 510 Hafnarfjörður, 610 Reykjarvíkurflugvöllur) og gullmolinn við kerfið er að það kemur svakalega mikill hávaði þegar áhöfn slökkvibíls er kölluð út, sem gæti vakið kirkjugarð ( kallast Zúmmmm hér eftir).

Þar sem ég var að tala um að reyna að nýta blessaða tæknina betur, enda tæknilega sinnaður maður, vildi ég benda Neyðarlínunni á þann möguleika sem þeir hafa að KALLA AÐEINS UPP ÞÁ STÖÐ SEM VIÐ Á HVERJU SINNI, það er allt til staðar til þess..... En nei, það væri eitthvað of sniðugt. Kannski er verið að halda okkur utan djúpsvefns, svona ef það þyrfti á okkur að halda!!!!!

Annars fór ég nú ekkert framúr til þess að kvarta yfir þessu, þar sem ég sneri mér samviskusamlega á hina hliðina og hélt aftur á vit æsispennandi draumalandsins....... eða ekki.
Minn var ekki búinn að ná sér eftir Tachicardiuna þegar við Hörður þurftum að fara í útkall á sjúkrabílnum, en í þetta skiptið fékk ég heldur blíðlegri vakningu en frá vinum mínum á neyðarlínunni. (takk Hörður)

Oki þetta er orðið gott, búinn að losa um gremjuna í garð Neyðarlínunnar og er að spá í að fá mér kríu, svona rétt fyrir vaktarskiptin.

P.S Svona Blogg er hreint frábær staður til þess að losa kerfið við allskyns órólegheit..... :)

föstudagur, nóvember 28, 2003

Jæja, nú er andri kominn með bloggsíðu.... hver sá þetta fyrir????? nenni ekki að skrifa neitt eins og er, en másske seinna

This page is powered by Blogger. Isn't yours?