Tenglar
Eldra efni
- 11/01/2003 - 12/01/2003
- 12/01/2003 - 01/01/2004
- 01/01/2004 - 02/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
Gestir síðan 24.09.2004
Kemur sterkur inn..
fimmtudagur, desember 25, 2003
Gleðilega hátíð. Ég er núna búinn að vera voðalega fínn í vinnunni, í glænýjum "officer" jakkafötum sem vinnan skaffaði. Gilltir hnappar og rendur á ermum, kaskeiti og ég bara veit ekki hvað. Notaði þau sem jóla átfittið í ár.
Svo er minn að spá í að fara eftir helgina og kaupa sér sjónvarpsslökkvitæki í bæði sjónvörpin heima. Var að koma úr eldi í íbúð í Garðabæ þar sem kveiknað hafði út frá TV, og það var allt ónýtt þegar við Hörður vorum búnir að slökkva í íbúðinni.
Það er ótrúlegt hvað það er mikið tjón sem eldur , hiti, sótið, vatnið og reykurinn veldur. Allt meira og minna ónýtt og meira að segja óopnaðir jólapakkar :( Hörmulegur jóladagur hjá þeirri fjölskyldu. En það komust þó allir út með væga reykeitrun.
Meira að segja reykskynjarinn á ganginum var bráðnaður, það segir til um hitann sem hefur leikið um íbúðina.
Að lokum:
Áfam Reykskynjarar og slökkvitæki, í öllum sýnum útgáfum.
eigðu gleðilega hátíð.

þriðjudagur, desember 23, 2003
HóHóHó..... hef ekki gefið mér tíma til þess að röfla mikið síðustu daga. En það eru jól á morgun og ég að vinna til kl 19:30.
Þá fer ég beinustu leið í mat í kjaló. Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið sig saman og safnað dágóðri peningasummu til styrktar slysó-píunni sem missti allt sitt í eldi fyrir stuttu síðan.
Hún fær frá okkur strákunum 145.000 kall og slökkvitæki og sitthvað meira..... Segið svo að við erum ekki næs!!!!!!
Gleðileg Jól.... Hó,hó

þriðjudagur, desember 16, 2003
Kominn með fleiri hugmyndir......
* TEVA sandala, þeir gömlu eru orðnir vel slitnir. þetta er reyndar mjög góð hugmynd.
Það er allt annað andrúmsloft á stöðinni eftir að siggi medic fór í jólafrí, allt svo rólegt og afslappað.Enginn æsingur :) Fengum Bóbó litla þess í stað sem jafnast á við að hafa 3 persónur á stöðinni í einum og sama manninum........ Mörður.
Það er ekkert smá sem ég er búinn að vera duglegur í dag, fór í ræktina klukkan 10 of var til 12. eftir matinn fór ég með annan dælubílinn og setti á hann olíu. Svo fór ég úr með körfubílinn og skipti um 2 perur sem voru sprungnar utan á húsinu.
Þrifum sjúkrabíl og töldum á honum líka. Allt að verða vitlaust.
Það stóð til að fara út og klippa einn bíl eða svo en þar sem við vorum að bíða eftir að sjúkrabíllinn kæmi aftur á stöð verður það sennilega blásið af vegna myrkurs.
Svo var ég að tala við klæðskerann minn og fæ ég fínu jakkafötin á morgun og húfuna frá P.eyfeld í næstu viku. Verð ég sko orðinn flottur um jólinn og tilbúinn á vakt.

Úfff hvað ég er saddur og sæll. Merkilegt hvað maður getur vanist þessum blessuðu múlakaffis bökkum.Maður þróar sennileg með sér móteitur með tímanum, allaveganna hafa eldri starfsmenn á stöðinni ekki orðið meint af því, ENN...!!!
Hvernig er þetta með jólasveinana og skóinn? á maður ekki að fá gott í skóinn á hverjum morgni til jóla? Ég er búinn að vera voðalega þægur síðustu daga en ekki fæ ég í skóinn :(
Kæri jólasveinn, ef þú ert að lesa þetta þá máttu ekki gleyma mér þó ég stundum gleymi þér.
Ég hef ákveðið að setja óskalistann minn hér á síðuna, þér til aðstoðar að velja handa mér jólagjöf:
* Nett vasasdiskó til þess að nota í ræktinni, er ekki að tala um kasettutæki heldur nett útvarp.
* Stóra og góða verkfæratösku, þar sem sú gamal er löngu ónýt.
* Buxur eða peysu, eða bara eitthvað annað sem klæðir mig.
* allt sem er með tökkum á og blikkar ljósum er voða fínt..... Gadet freak
* eitthvað tengdu gítar þar sem ég er nú að glamra af og til...
* Eitthvað slökkviliðs eða sjúkraliðs.... what ever!!!
* framhald síðar þegar ég man fleira.......
P.s þessi listi er skrifaður upp af handahófi..... Bless

sunnudagur, desember 14, 2003
Bráðum koma blessuð jólin...... er mikið sungið á mínu heimili. En jólin á mínu heimili verða eitthvað sundurleit þar sem húsbóndinn er að vinna á aðfangadag og jóladag, en það er þó skárra að vera á dagvaktinni, búinn klukkan 19:30 og svo beint í jólasteikina í kjaló.
Hef ekki verið duglegur að blogga síðustu daga, svona er það þegar mesti sjarminn fer af þessu, en annars er það að frétta að halldór nokkur heiðar er búinn að leggja nýju íbúðina í rúst þannig að eftir stendur einungis einn og hálfur veggur. Það á semsagt að endurhanna íbúðina frá grunni.Gangi þér betur að klára íbúðina en carlo´inn lilllllli minn...... :)
Svo kemur ívar litli til landsins á sunnudaginn frá litla landinu í austri (Danmörku) og er planað að ég sæki hann.....
Hilsen

laugardagur, desember 06, 2003
Sko, það gat ekki verið að ég fengi að halla mér lengi..... Stuttu eftir að ég fór í "sleep mode", heyrðist á kallkerfinu að það ætti strax að manna sjúkrabíl nr 2 í forgangsflutning.Svo minn stökk af stað varla vitandi hvað sneri upp né niður og dröslaðist út að vinna.
Merkilegt hvað allt getur verið flókið þegar maður er ný-vaknaður.........

Geisssp..... er dálítið sifjaður þennan morguninn.... Við Siggi jóns fórum á kostum í gærkveldi, við fengum 2 af kvöldvaktinni til þess að mæta í fyrrafallinu svo við gætum skellt okkur í opnunarveislu í skógarhlíðinni. Bjuggumst við öli og e-u að borða, en
fengum nóg af öli og ekkert að borða. Sko!!! þegar karlinn kemur sársvangur í svona veislu og einungis áfengi í boði er
aðeins til ein útkoma ::::: Karlinn verður voða fullur á skömmum tíma. Rúlluðum þarna um í nokkra klukkutíma og svo var ferðinni heitið á kringlukrána þar sem við slökkvararnir hittumst og ræddum málefni líðandi stundar enn frekar með kollu í hendi.
Ég að vísu var orðinn frekar blautur þegar þangað var komið þannig að ég ákvað að fara heim um klukkan 21:00.
Rölti í bláa turninn til að svala hamborgara-franskar-kók físn minni. Það er ótrúlegt hvað ég verð alltaf sólginn í skyndibita
þegar ég er að skemmta mér (er í glasi). Svo byrtist allt í einu engill svífandi á silfurlituðum daihatsu og keyrði mig heim til tengdó þar sem ég naut þess að hrjóta í leðrinu. Var kominn undir sæng klukkan 22:00 að staðartíma, enda ekki snefill af orku eftir í karlinum........ En það er önnur saga með Sigga sem kom víst rúllandi heim um 02:30, og er nú lúllandi.....
(þetta rímaði aðeins)
Ég er nú samt ákveðinn í að reyna þó að halda mér vakandi þó að "stellið" vilji annað. ( stell = líkami)
Ohhhh hvern er ég asð reyna að plata,,,, ætli ég laumist eitthvað afsíðis til þess að hrjóta í laumi.....
Nenni ekki að skrifa meira, þó að það sé nóg til að tala um.....
Hilsen 0309

fimmtudagur, desember 04, 2003
Þá er ný vaktartörn framundan, hinn himneski Hafnarfjörður býður eftir mér í fyrramálið kl 07:30 sharp.
Var að tala við félagana á vaktinni og erum ákveðir í að halda annan fund klukkan 17:15 á morgun,
fáum góða menn til þess að leysa okkur af og svo verður haldið í skógarhlíðina.
Þar sem haldið verður upp á opnun á nýrri hæð sem við varðliðið og sviðstjórarnir munum halda okkur. Ef áætlun stenst verður svo áframhaldandi fundur á ákveðnum bar í bænum......
Fór á stúfana með konunni í dag og var stefnan tekin í smáralind þar sem við kláruðum stóran hluta af jólagjafainnkaupunum og í leiðinni fékk ég að kaupa mér nýtt leikfang, JABRA 200 bluetooth handfrjálsann búnað.
Ég rak nefnilega augun í 30% verðlækkun á þessu apparati í mogganum og var samstundis ákveðinn að eignast þennan merka og ómissandi hlut...... kemur nokkuð vel út. Verst ef símreikningurinn minn færi að hækka vegna tilrauna með apparatið góða.
Góðar fréttir, konan er komin með tímabundið starf hjá LSH-fossvogi sem ritari hjúkrunarforstjóra sem þýðir að hún getur minnkað við sig vinnuna í sjoppunni góðu. Ætlar nú að reyna að grípa þar aukavaktir af og til... bling,bling $
Ég leigði mynd í gærkveldi, Terminator 3. Kom mér lítið á óvart framan af en endirinn kom mér alveg í opna skjöldu.
Fullt af hasar, játakk.
herrru, þá er komið að Joe millionaire á skjá einum. minn að horfa.............................................

miðvikudagur, desember 03, 2003
Úffff... hvað maður getur verið þreyttur og latur í senn. Var að koma af 23 1/2 tíma vakt í morgun og er doldið dasaður eftir það.
Á þessum bæ er allt í kafi í jólastemningu, kveikt á 2 dagatalskertum, jólatónlistin í bakrunni og ragnheiður að syngja með.
Ég fékk hjarta úr jóladagatalinu mínu í dag, ágætis súkkulaði.
Ógeðslega er leiðinlegt veður úti, held að ég fari ekkert út úr húsi í dag ef ég mögulega kemst upp með það.
Annars er það að frétta að betri helmingur arnórs er komin með bílpróf, varúð úti í umferðinni!!!!!!!!! nei,nei til hamingju með prófið Vigg,vigg.........
Svo erum við Hörður H að spá í nýjustu græjurnar á markaðinum í dag, DVD / VHS combo tæki. Semsagt dvd og video sambyggt. Erum búnir að rannsaka þessa hluti aðeins og erum komnir á það að kaupa helst tæki frá Philips, kostar um 35 þúsund í ELKO.... Þetta yrði Jólagjöfin til okkar í ár.
Svo er það frétt dagsins, Óskar, félagi minn í slökkviliðinu var að bjarga mannslífi, hnoðaði ungan strák í gang. Til hamingju óskar, þú átt eflaust þinn stað á himnum.......
Endum þetta með þessum orðum..... Amen

mánudagur, desember 01, 2003
Jæja krakkar, þá fer að styttast í jólin (pakkana). Var að ljúka síðustu vaktinni í bili.Nú tekur við bardaginn um aukavinnuna
og viti menn, ég náði nér í næturvakt og dagvakt á sjúkrabíl $$$$$$$$$$
Var að koma úr verslunarleiðangri með arnóri, þar sem honum tókst að versla inn jólagjöfina fyrir konuna sína...
Hvað á ég eiginlega að gefa minni konu, hún sem á allt til........... allar ábendingar vel þegnar undir Comments.
Ég kom þó ekki tómhentur heim, heldur afrekaði að kaupa kattarfóður, jóladagatöl og leikfangamýs :þ
Ég náði að pirra konuna í dag, fór fyrir hana með atvinnuumsíkn niður á hvefisgötu, var ekki viss um að ég væri á réttum stað þar sem mér fannst ekki beint líklegt að frúin væri að sækja um starf hjá alþjóðadeild rauðakrossins, þannig að ég spurði póstkall sem var að koma úr húsinu hvort ákveðinn aðili væri í þessu húsi. Hann hélt nú ekki, búinn að bera út póst í þetta hús í mörg ár og aldrei farið með póst til neins með þessu nafni,og ætlaði svo ekki að skila mér umslaginu.
Ég ákvað að kíkja upp samt sem áður upp, en karlinn gerði sitt besta til þess að sannfæra mig um að þetta væri bara tímasóun og ég ætti ekkert erindi þarna upp (snælduklikkaður karl).
Ég ákvað þá að hringja í konuna og hafði þá greinilega hitt
á versta mögulega tíma, fullt að gera og mátti ekkert vera að tala við vitlausann andra sem getur ekki farið eftir leiðbeiningum
Jæja nóg í bili........