<$BlogRSDUrl$>

Kemur sterkur inn..

miðvikudagur, janúar 14, 2004

Er ég ekki orðinn dálítið lélegur í að blogga, ekki það að margir séu að lesa...... sennilega bara ég og Frúin.
Er orðinn góður eftir veikindin og tel mig þá vera búinn með árs skammtinn 2004. Ég er farinn að örvænta vegna þess að
ég er að fara í vetrarfrí sem telur víst hvorki meira né minna en 24 daga...... hvað á ég að gera í 24 daga, allar tillögur vel þegnar. Svo var ég að fá á hreint hvenaær ég á að fara í sumarfrí og er það víst dagana 26.ágúst -15.Sept (er frekar líkara haustfríi en sumarfríi). Annars er það í fréttum að leigusalinn minn er farinn að auglýsa húsið sitt til sölu og þá verður andri að vera búinn að koma með sín 10% í bankann...... R.B skilur þennann. Ekki það að ég sé farinn að örvænta þar sem svona tekur eflaust nokkra mánuði að bakast.
Og nú er Ragnheiður orðin sérfræðingur í Vefsíðugerð og viðhaldi slíkra síða, til hamingju frú.

"jæja svona er víst Ísland í dag,strákar", eins og hann Stjáni Þórðar segir.........


bless í bili

þriðjudagur, janúar 06, 2004

Atttzzzzjjjúú...... Guð hjálpi mér. Hvað það getur lekið endalaust úr ekki stærra nefi en þetta...... Óþolandi þessi kvefpest sem er búin að koma sér vel fyrir í litlu holunni í fjöllunum.Konan tók að vísu upp á því að koma með þetta í hús rétt fyrir áramótin þannig að ég var kominn með kvef stimpilinn eftir fyrsta hnerra frá konunni.

Það var meira að segja svo slæmt að ég fór ekki til vinnu í gærkveldi af ótta við að smita vaktina og sjúka sjúklinga.
Er til lítils að hringja eftir sjúkrabíl til að láta flytja veika manneskju og fá til sín kvefaðann sjúkraflutnigamann/menn....
En planið er samt að fara á vaktina í kvöld, er með smá hósta og kvef sem ég er búinn að ákveða að verði farið þá. og hananú.

Farinn í mat.

fimmtudagur, janúar 01, 2004

Gleðilegt nýtt ár. Takk fyrir þetta liðna...... er á vaktinni þessa nýarsnóttina, vaktin hjá mér byrjaði klukkan 00:30 og hefur
þetta verið rólegt hingað til....... sjáums til hvað gerist til morguns.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?